Tilgangur
Tilgangur siðareglnanna er að tryggja lágmarkskröfur sem varða félagslega þætti í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar á sviði mannréttinda og vinnuverndar í samskiptum við birgja séu uppfylltar. Markmiðið er að hvetja til þess að birgjar leggi sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar, hugi að umhverfisvernd og viðhafi ábyrga stjórnarhætti auk þess að tryggja að þeir virði og fari eftir alþjóðlegum skuldbindingum.
Gildissvið
Siðareglurnar ná til allra birgja og samstarfsaðila Airport Associates og er þeim gert að tryggja framfylgd þeirra gagnvart aðfangakeðju sinni.
Heilsa, öryggi og umhverfi
Ætlast er til að birgjar þekki umhverfisárhrif starfsemi sinnar og leggi sitt af mörkum við að draga úr þeim áhrifum með markvissum hætti. Mælst er til þess að birgjar hafi hringrásarhagkerfið að leiðarljósi í sínum rekstri.
Airport Associates gerir þá kröfu að birgjar leggi áherslu á öryggismál og tryggi starfsfólki sínu öruggt starfsumhverfi, auk fræðslu og viðeigandi hlífðarbúnaðar þegar við á.
Mannréttindi
Ætlast er til þess að birgjar virði alþjóðleg mannréttindi og fari eftir þeim lögum og reglum sem sett eru fram þar um, sbr. alþjóðlega mannréttindasamninga og yfirlýsingu Alþjóðavinnumálastofnunar um grundvallarréttindi í atvinnulífinu (e. ILO Declaration on Fundamental Principles and Rights at Work).
Enn fremur að tekið sé tillit til eftirfarandi atriða:
Stjórnarhættir
Gerð er krafa um að birgjar starfi í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti, að lögð sé áhersla á siðferði í viðskiptum og reglur varðandi jafnlaunavottun og kynjahlutföll í stjórn séu virtar.
Forðast skal hagsmunaárekstra og persónulega hagsmuni í viðskiptum og láta vita ef slík mál koma upp.
Airport Associates gerir kröfu um að birgjar fylgi lögum og reglum varðandi samkeppnislög, skattamál, persónuvernd og spillingu og mútur og tryggi upplýsingaöryggi og öryggi gagna. Frávik frá siðareglum getur leitt til riftunar á samningi eða endað viðskiptasamband.
Samþykkt af forstjóra 05.09.2025
Fill out the form below and we will reply within 24 hours